Corporate Governance Advisory
Stjórnviti veitir eigendum, stjórnum og stjórnendum sérhæfða ráðgjöf á sviði stjórnarhátta og lögfræði — með það að markmiði að styðja við faglega ákvarðanatöku, auka virði og efla árangursríka stjórnun.
Þjónustan
Stjórnviti býður upp á fjölbreytta fræðslu, ráðgjöf og úttektir á sviði stjórnarhátta. Þjónustan er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar — hvort sem um er að ræða lítið fjölskyldufyrirtæki eða stórvirkt hlutafélag.
Hér er yfirlit yfir það sem boðið er upp á. Listinn er ekki tæmandi — ekki hika við að hafa samband ef þú vilt fræðast nánar.
Fáðu skýra yfirsýn yfir helstu ábyrgðir stjórnar og hlutverk hennar. Einfaldar útskýringar og hagnýt ráð sem nýtast bæði nýjum og reyndum stjórnarmönnum.
Við úttekt eru stjórnarhættir viðkomandi fyrirtækis kortlagðir og metnir með hliðsjón af viðurkenndum viðmiðum. Í kjölfarið eru lagðar fram tillögur að úrbótum ásamt framkvæmdaáætlun.
Lærðu hvernig skipuleggja má árangursríka stjórnarfundi og halda fundargerðir á réttan hátt. Skref-fyrir-skref leiðbeiningar og praktísk ráðgjöf.
Ráðgjöf um hvað einkennir góða stjórn og hvernig hún fullnægir hlutverki sínu á skilvirkan hátt. Gagnlegt bæði til upprifjunar og sem grunnfræðsla.
Stjórnviti veitir ráðgjöf og framkvæmir úttektir á sjálfbærnimálum fyrirtækja og stofnana.
Teymið
Samúel er lögmaður sem hefur komið víða við í íslensku atvinnulífi og hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf um stjórnarhætti. Hann hefur starfað hjá skráðu félagi, fjártæknifélagi, eftirlitsaðila og dómstólum, auk þess að sinna kennslu.
Í störfum sínum hefur Samúel öðlast yfirgripsmikla þekkingu á ábyrgð stjórna, ritun fundargerða, framkvæmd funda, sjálfbærni, verklagi stjórna og margt fleira sem tengist stjórnarháttum í framkvæmd.
Hann hefur annast lögfræðilega ráðgjöf við alþjóðlega samningagerð, góða stjórnarhætti ásamt innleiðingu á ýmsum skilmálum, lögum og reglum í starfsemi fyrirtækja og stjórna.
Samband
Viltu fræðslu eða ráðgjöf um stjórnarhætti? Sendu fyrirspurn og ég hef samband við þig eins fljótt og auðið er.